Föstudaginn 22. nóvember heldur Lay Low heldur útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík með mikla tilhlökkun, æðislega hljómsveit og sérstakan gest í farteskinu, hann Snorri Helgason (þgf)
Allir eru í rosalega góðu skapi, enda verið að fagna glænýrri plötu. Komið og hittið okkur í Fríkirkjunni!
http://midi.is/tonleikar/1/7965
Miðasala í fullu fjöri á midi.is
-------
Nafn nýrrar hljómplötu Lay Low, Talking About The Weather, skýrskotar til nýrrar en þó...
Föstudaginn 22. nóvember heldur Lay Low heldur útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík með mikla tilhlökkun, æðislega hljómsveit og sérstakan gest í farteskinu, hann Snorri Helgason (þgf)
Allir eru í rosalega góðu skapi, enda verið að fagna glænýrri plötu. Komið og hittið okkur í Fríkirkjunni!
http://midi.is/tonleikar/1/7965
Miðasala í fullu fjöri á midi.is
-------
Nafn nýrrar hljómplötu Lay Low, Talking About The Weather, skýrskotar til nýrrar en þó gamallar festu í tilveru listakonunnar, en hún flutti nýverið aftur af mölinni á suðurlandið þar sem hún hefur áður búið. Eins og allir Íslendingar vita, er veðurfarið ábúendum í sveitinni ávalt hjartfólgið og sérstaklega veigamikill þáttur í sveitalífinu. Hér kveður við nýjan og persónulegri tón, en á þessari fjórðu hljómplötu Lay Low svífur andi sveitarinnar yfir, og tók ómeðvitað að setja mark sitt á sköpunina þegar þangað var komið enn á ný. Heimkoman í sveitina sendir laga- og textasmíðar í óvæntar áttir, en drepið er niður í fortíðinni, ljúfsárt uppgjör við æskuár, veikindi, sjálfstæðisbaráttu manneskjunnar og listakonunnar.
Á þessum persónulegu nótum var tekið til við gerð hljómplötunnar og áður ótroðnar slóðir farnar. Alla jafna hefur Lovísa haft valda manneskju í hverju rúmi en í þetta sinn var því ólíkt farið, allur hljóðfæraleikur og söngur er í höndum hennar sjálfrar, utan trommuleiks sem samstarfsmaður hennar til margra ára, Bassi Ólafsson sá um. Til hljóðblöndunnar var fenginn hinn breski upptökustjóri Ian Gimble, en hann hefur getið sér gott orð fyrir störf sín með hljómsveitum á borð við Daughter, Beth Orton, Benjamin Francis Leftwich, auk skosku hljómsveitarinnar Travis svo fáeitt sé nefnt.
Platan Talking About The Weather inniheldur 11 lög og kemur í verslanir 15 nóvember og lagið Gently er þegar tekið að heyrast í útvarpi.
-------
https://www.facebook.com/helgasonsnorri?ref=br_rs
Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur á undanförnum árum skapað sér gott orð í tónlistarheiminum bæði innanlands sem utan. Tónlist Snorra er nokkurs konar þjóðlagapoppbræðingur þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. Tónlist Snorra hefur verið líkt við söngvaskáld eins og Neil Young, Paul Simon og Harry Nilsson sem voru upp á sitt besta á árunum í kringum 1970.
Snorri hefur verið starfandi sem tónlistarmaður í u.þ.b. 6 ár og hefur gefið út 5 plötur sem allar hafa fengið mikið lof gagnrýnenda, 2 með hljómsveitinni Sprengjuhöllin og tvær sólóplötur, I'm Gonna Put My Name On Your Door (2009), Winter Sun(2011) og nú síðast Autumn Skies (2013) sem er fyrsta plata hljómsveitarinnar Snorri Helgason. Lag Snorra, Verum í Sambandi, vann meðal annars til íslensku Tónlistarverðlaunanna fyrir lag ársíns vorið 2008.
Hljómsveitin Snorri Helgason er skipuð ásamt Snorra þeim Guðmundi Óskari Guðmundssyni (Hjaltalín, Tilbury, Borko, Mono Town o.fl), Daníel Friðriki Böðvarssyni (Moses Hightower), Magnúsi Trygavasyni Eliassen (Amiina, Sin Fang, Adhd, Tilbury o.fl.) og Sigurlaugu Gísladóttur (múm & Mr. Silla). Þessi hópur hafði verið að spila tónlist Snorra á tónleikum í u.þ.b. tvö ár áður en þau ákváðu að taka skrefið til fulls og stofna hljómsveit um það leiti sem vinnan við upptökur á Autumn Skies hófust haustið 2012.